Wacken Open Air hópferð - laus sæti að bætast við Jæja gott fólk.

Ég var að fá þær gleðifréttir að vegna gríðarlegs áhuga hefur danski framkvæmdaaðilinn að þessari hópferð enn bætt við sætum.

Um er að ræða hópferð á þýsku þungarokkshátíðina Wacken Open Air, en Restingmind Concerts hefur haldið utan um hópferð á þessa hátíð núna í 3 ár. A.m.k. 51 manns eru að fara í þessa hópferð í ár. Hljómar áhugavert?? Sjá: http://www.taflan.org/viewtopic.php?t=21773 og auðvitað http://www.wacken.com

Ef þið hafið áhuga eða vitið um einhverja sem gætu viljað fara með, þá er um að gera að taka upp símann, opna póstforritið eða msn og athuga málið. Eins og staðan er í dag eru 51 maður að fara í þessa hópferð (nokkrir sem skráðu sig urðu að hætta við).

Skráningar- og borgunarfrestur fyrir þessi aukasæti er til 12. júlí. Eins og áður eru frekari upplýsingar um ferðina að finna hérna: http://www.taflan.org/viewtopic.php?t=21773
Resting Mind concerts