Fyrsti bannerinn sem ég sendi inní keppnina.Hvað finnst ykkur?
Já, hér er semsagt einhverskonar furðu-ævintýra-fantasíu vera :D …. sem vinnur á skrifstofu (gæti passað inn í Fables myndasögurnar).
Mynd sem ég gerði á SketchBook Pro forritið. Ég er ekki vanur að gera myndir í tölvu en mér finnst SketchBook vera mjög þægilegt forrit til þess (svipar mjög til þess að teikna á blað). Ég gerði um 75% myndarinnar án aðstoðar teikniborðs (á frekar lélegt teikniborð) en ég teiknaði þetta á fartölvunni minni. Myndin er að hluta til byggt á ævintýraheimi sem ég er að skrifa um.