BESTA SOJASÓSA Í HEIMI!!! Þessari sojasósu hérna mæli ég eindregið með. Allir sem hafa smakkað hana svo ég viti til hefur fundist hún mjög góð ef ekki æðisleg. Ég skil bara ekkert í verslunum og heildsölunni sem flytur hana inn, að auglýsa hana ekki betur, því hún fæst ekki alls staðar.
Þessi ljúffenga sojasósa heitir “CONIMEX KETJAP MANIS SWEET INDONESIAN SOY SAUCE” svo ég hafi það nú alveg nákvæmt. Munurinn á henni og öðrum sojasósum er að þessi er mun sætari á bragðið.
Þessi sojasósa fæst í Hagkaupum, samt ekki öllum Hagkaupum, fæst t.d. ekki í Kringlunni, en fæst í Skeifunni.
Ég hvet eindregið alla sem lesa þetta að kaupa þessa sósu og segja vinum og ættingjum frá henni.