Þeim sem finnst hunang ekki gott, ekki vera með neinn derring um að hunang sé ógeðslegt, það er hunangsbragð af þessu,

Hráefni:

3dl.rjómi
Eitt egg
4 eggjarauður
1dl. fljótandi hunang

Aðferð:

Það á að byrja á því að stífþeyta rjómann, munið að klára að þeyta rjóman alveg áður en þið bætið hinu út í. Setjið Eggið, eggjarauðurnar og hunangið í skál og hellið hægt út í rjóman, hrærið lauslega á meðan. Þeytið svo allt saman og hellið í box, t.d. gamalt ísbox. Setjið í frysti lágmark 3 klukkutíma.
Best er að borða hann áður en hann verður of frystur.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~