Snjókarl/ninja Hér meðfylgjandi er mynd sem var tekin af ninja, dulbúnum sem snjókalli, sem ég barðist við við austurvegg úti dojo'sins míns.
Bardaginn var langur og erfiður, en endaði þannig að ég náði honum í tomoe nage og var auðvitað staðinn upp áður en hann lenti, þá tók ég kastnagla oh tyllti honum smekklega á milli augnana á ninjunni.

Af kústskaftinu að dæma, en svona sköft eru banvæn í höndum ninja, mætti halda að hann væri annaðhvort norn eða skúringakona á leið í vinnu, en eins og fróðir menn vita, þá eru ninjur meistarar dulargervisins.

Kv. W