Jæja, mér datt allt í einu í hug að það gæti verið gaman að kíkja á æfingar í einhverri bardagaíþrótt og þar sem Hugi er jú fullur af hjálplegu, tillitssömu fólki þá ákvað ég að koma með spurningar mínar hingað. Mig langar að fá að vita hvað væri sniðugt að prófa miðað við einhvern sem er þegar að æfa aðra íþrótt 4x í viku og hefur áhuga á að bæta við sig 2 æfingum í einhverri bardagaíþrótt? Ég bý í Hafnarfirði en er niðri í miðbæ alla virka daga, svo ég myndi vilja sjá staði nálægt þessum staðsetningum.
Einhverjar uppástungur?
www.brotherhoodofiron.com