Gunni var rétt í þessu að sigra Opna írska meistaramótið í Brasilísku Jiu Jitsu (Irish BJJ Open) en mótið fór fram í Dublin á Írlandi í dag. Keppt var í flokki fjólublá beltinga og undir en Gunni keppti í opnum flokki og sigraði allar sínar glímur, fjórar alls, og vann þar með gullverðlaunin.