Byrjenda námskeið á Brasilian Jiu Jitsu á vegum Mjölnis verður haldið laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. nóvember í íþróttarhúsinu á EGS.
Farið verður yfir helstu grunnatriðin í þessari fornu og virtu brasilísku sjálfsvarnarlist. Þátttakendur munu læra að yfirbuga andstæðinga með “lásum” einnig læra að komast úr helstu “lásum og tökum” auk þess verður farið yfir fleiri grunndvallarþætti sjálfsvarnar.


Námskeiðið stendur yfir frá 10:00-13:00 laugardag og 11:00-14:00 sunnudag. Námskeiðið kostar 2500 kr Fyrir báða dagana en 1500 kr Fyrir annan daginn.

Skráning og frekari upplýsingar hjá Arnari Jóni – 8680857
“When all are one and one is all”- '