Sælir ofurhugar,

Með fullri virðingu fyrir ‘skondna BJJ’ þræðinum hans Hr. Freaky og þeim umræðum sem áttu sér þar stað; þá vildi ég leggja hér tvær fréttir við (svona hrist úr erminni) án þess að vera kannski að teygja of mikið úr efninu, en mér fannst ég verða að deila þessu þar sem atvikin voru í blöðunum hér í gær:

Konu nauðgað í Rotterdam
Setið var fyrir ungri konu á heimleið snemma að kveldi, en ungur maður réðst skyndilega að henni og dró hana með sér inní runna. Þar var henni ógnað með hníf og nauðgað hispurslaust, án nokkurs mótþróa… Konuna sakaði víst lítið utan væntanlegra meiðsla…

Nauðgara misþyrmt
Kona á reiðhjóli lenti í því atviki að maður einn hjólaði upp að henni og baðst aðstoðar vegna lítilfjörlegrar bilunar á eiginn fararskjóta. Konan þráaðist við, enda leist henni ekki betur en svo og svo á viðkomandi, en staldraði þó við og fylgdist með þegar maðurinn fór eitthvað að stumra yfir sínu hjóli. Umsvifalaust - og með óskiljanlegu muldri - vék maðurinn sér að henni og greip í brjóst hennar í þeim tilgangi að draga hana að sér, en brá illilega við er hann var tekinn hörðum höndum, nefbrotinn með hnéskoti og svo hnefaleikinn til óbóta… Enda þakkaði konan áralöngum ferli í Muay Thai/Thaiboksi fyrir sínar bjargir.

Svona getur þetta verið og nú má endalaust pæla/deila hvort sé betra og hvað virki, en gaman að sjá hversu hnefaleikarnir redduðu málunum hér; þó svo spurning sé - sem ætíð - hvernig fyrri sögu hefði lokið við svipuð viðbrögð…

Kv,

D/N