Mjölnir er að flytja í nýtt og glæsilegt 350 fm húsnæði núna um mánaðarmótin!

Mjölnir mun vera með formlega opnun á nýja húsnæðinu laugardaginn 2.september. Boðið verður upp á léttar veitingar, starfsemi Mjölnis kynnt auk skemmtiatriða.

Vonum að allir láti sjá sig og fagni með okkur þessum frábæra áfanga.

Húsið er staðsett á Mýrargötu 2-8 og verður opið milli 15:00-17:00

BYRJENDANÁMSKEIÐ hefjast svo mánudaginn 4. september. Ef þú hefur áhuga á að skrá þig hringdu þá í síma 534 4455 eða 692 4455.

Fyrir hönd Mjölnis:
Jón Viðar Arnþórsson
www.mjolnir.is
*************************