Á júdóæfingu um daginn lenti ég í því að annað eyrað á mér varð fyrir dálitlu hnjaski í gólfglímu og hefur verið að bólgna ansi mikið upp eftir það.

Ég hef tekið eftir því að gamlir júdókappar og ýmsir keppendur í UFC/Pride FC eru með dáldið afskræmd eyru eftir mikið hnoð í gólfinu.

Veit einhver hvað þetta er og hvernig er hægt að láta laga þetta?
“True words are never spoken”