Nýjustu fregnir herma að Árni Ísaks, sem er á leiðinni til Flórída á alþjóðlegar æfingarbúðir Straight Blast Gym International ásamt John Kavanagh og hinum Íraskröttunum hafi reddað sér slag með stuttum fyrirvara þar í gegnum Adam Singer, SBG forkólf og þjálfara Forrest Griffin.

Þetta er allt í járnum ennþá en samkvæmt áræðanlegum heimildum(þ.e.a.s members only spjallborði SBGi) vantaði lókal keppni í næsta nágrenni við æfingarbúðirnar keppanda í þyngdarflokknum hans Árna og þar sem hann rústaði síðasta andstæðing án þess að verða fyrir verulegu hnjaski þá sló hann til.

Allar upplýsingar um andstæðing hans eru á huldu, en keppnin mun fara fram um næstu helgi, þ.e.a.s ef að þetta dettur ekki uppfyrir vegna veðurs.

Guð hjálpi Flórída, fyst Katrín, svo Wilma og núna Árni!!! Hefur þetta fólk ekki þjáðst nóg?!?!