SBGi á Íslandi kynnir!!!

Helgina 4. og 5. júní næstkomandi verða æfingabúðir í Brasilísku Jiu Jitsu (BJJ).

Leiðbeinandinn er enginn annar en Matt Thornton (www.straightblastgym.com) sem er einn af virtustu og bestu BJJ kennurum í heiminum í dag. Það sem kennt verður er eingöngu efni sem að hefur sýnt sig og sannað að virkar!

Það sem þú ættir að fá út úr þessum æfingabúðum er meðal annars…
*10 - 12 klukkutíma af góðri þjálfun í gólfglímu
*Góða hugmynd um hvernig á að ná sem mestu út úr hverri æfingu fyrir sig
*Lærir að æfa “lifandi”

Staður: Salur K.F. Þórshamars, Brautarholti 22
Stund : Laugardagurinn 4. júní á milli 10:00 og 17:00 og sunnudagurinn 5. júní á milli 11:00 og 17:00
Mæting á laugardeginum er klukkan 09:30 og á sunnudeginum klukkan 10:30
Það verður tekið klukkutíma matarhlé báða dagana!

Verðið er KR 8.500,- (ef greitt er fyrir 27. maí)
og KR 10.000,- (ef greitt er 27. maí eða síðar)
Verð fyrir einn dag er KR 6.000,-

Til að skrá sig eða til að fá meiri upplýsingar hafið samband við mig í annað hvort
bjadni@mma.is
eða 698-9658

Ef þið hafið áhuga á að fá frían kynningartíma í félagið ykkar hafið þá samband við mig! Ég mun vera með þá allan apríl og maí.

Sjálfur hef ég verið að æfa bardagalistir stanslaust síðan 1999. Ég hef aldrei áður lært neitt jafn hratt og vel síðan ég byrjaði í BJJ. Við í SBGi á íslandi erum aðili af Straight Blast Gym international og æfingakerfið hjá þeim er í einu orði sagt stórkostlegt! Það er í stanslausri þróun og er alltaf að verða betra og betra!