Sæl veriði!

SBGi á Íslandi er að fá Matt Thornton aftur hingað í sumar, æfingabúðirnar verða að öllum líkindum 4. og 5. júní. Við munum auglýsa þetta nánar síðar og þá verða staðsetning og verð komið á hreint.

Síðustu æfingabúðir með honum voru nokkuð vel sóttar og allir sem ég talaði við og voru þar voru mjög ánægðir með þær. Þetta verður með svipuðu sniði þ.e. laugardag og sunnudag og ca. 10-12 tímar í heildina.

Fyrir þá sem ekki vita hver hann er þá er hann stofnandi Straigh Blast Gym (www.straightblastgym.com) sem hefur getið sér mjög góðs orðs í kennslu á raunveruleika tengdri sjálfsvörn. Hann hefur æft box, JKD, og er með svart belti í Brasilísku Jiu Jitsu.

Þetta námskeið hentar öllum! sama hvað þið æfið, sama þótt þið æfið ekki neitt eða hvort þið hafið æft í 15 ár eða meira eða eruð byrjendur!