Sælir BJJ félagar.

Ég vildi láta ykkur vita að BJJ æfing fellur niður í kvöld, fimmtudaginn 8 apríl. Ég er búinn að hringja í nær alla og láta vita af þessu en hugsast getur að einhver ætli að mæta í kvöld. Ef sá fer fýluferð, þá biðst ég afsökunar á því að þessi tilkynning komi með svona stuttum fyrirvara, en það kom svolítið óvænt upp á mér á síðustu stundu sem ekki er við ráðið. Ég mun bæta úr þessu með aukaæfingu á næstunni, sennilega þarnæsta laugardag.

Kveðja,
Jón Gunnar.