Sælir. Fyrir þá sem hafa verið að æfa Brazilian Jiu Jitsu í Faxafeni 8 eða hafa áhuga á að kíkja í prufutíma, þá vildi ég láta vita að við erum búnir að breyta æfingartímunum lítillega. Við vorum að æfa á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 21:00 en núna æfum við

á þriðjudögum klukkan 21:30

og á fimmtudögum klukkan 22:00.

Við stefnum á að bæta við helgartíma sem fyrst. Ég vona að þetta valdi ekki of miklum óþægindum fyrir einhverja.

Athugið að enn sem komið er, æfum við í hnefaleikasalnum en EKKI í Aikido salnum.

Kveðja,
Jón Gunnar.