Hvað finnst ykkur um úrval bardagalista tímarita í bókabúðunum hér á landi? Ég hef bara fundið eitt núna nýlega og það er Tae Kwon Do Times sem ég fann í Eymundsson í Kringlunni. Vitið þið um meira úrval einhversstaðar hér í borginni?

Ég var að gerast áskrifandi af “Black Belt” og “Martial Arts & Combat sports” kannast einhver við það síðarnefnda? ( www.magazinecity.net )

Eru einhverjir hér á huga sem eru áskrifendur af einhverjum bardagalista tímaritum sem þið getið mælt með?

Bjadni
www.sjalfsvorn.is