Fyrir þá sem eru að pæla í því hvort að þið séuð orðin OF GÖMUL til að æfa bardagalist, þá vildi ég láta ykkur vita (sem vitið það ekki þegar) að núverandi þungaviktameistarinn í Ultimate Fighting Championship (UFC) er 39 ára gamall og heitir Randy Couture. Hann verður reyndar 40 ára í þessum mánuði (22 júní). Ég hef heyrt nokkra sem eru ekki einu sinni orðnir 20 ára tala um að þeir séu kannski of gamlir til að byrja að æfa.

Skítt með aldur.

Freestyle var reyndar búinn að skrifa hörkugrein um seinasta UFC, þar sem þið getið séð smáatriðin.