Skoðiði þetta…www.lethalo.com. Þetta er með því steiktara sem ég hef rekið augun í. Nafnið fékk mig til að halda að þetta væri einhvers konar ádeilugrín á svona gaura sem finna upp glæný bardagakerfi sem eru banvænni en allt annað…og allt annað er þá dæmt sem rusl um leið, og reyna svo að selja þessa uppfinningu fyrir stórfé. Þetta var svo ekkert grín heldur bara enn eitt svona kerfið hehe. Nafnið er samt óborganlega heimskulegt svona í stíl við flest á þessarri síðu :). Tékkiði á þessu…og segið mér hvort þið haldið að nöfn þessarra ufc gaura séu notuð í leyfisleysi eða hvort þeir standi virkilega á bakvið þetta. hahaha ég er enn hlæjandi.