Í gær, þriðjudaginn, var sennilega besta BJJ æfingin hingað til. Að mínu mati var hún talsvert betri en sú sem á undan var, aðallega vegna þess að við vorum ekkert að kenna advanced tækni heldur basic hluti BJJ sem er yfirleitt það sem sést í keppnum eins og Pride og UFC.

Það væri síðan fínt að fá að vita hvort eitthvað mætti betur fara í kennslunni.

Vonandi mæta sem flestir á laugardaginn kemur klukkan 15:00. Það verður farið í baneitraða gólftækni, þar á meðal lásinn sem Frank Shamrock sigraði wrestling manninn Kevin Jackson með eftir nokkrar sekúndur.