Gaman að sjá að bardagalistavefur huga hefur ákveðið að höfða meira til kvenfólksins og hafa mynd af huggulegum bardagakappa á forsíðunni. Ég er snortinn að fá að vera sá fyrsti. Þessi fallega mynd af mér að taka dwit chagi í Helga á vormóti Fjölnis er afar vel heppnuð og ég tek ofan (hjálminn) fyrir ljósmyndaranum. Að lokum vil ég þakka mömmu og pabba, þjálfurunum mínum og öllum æfingafélögunum í ÍR….án ykkar hefði ég ekki náð svona langt!