Shotokan Karate

Haldnar verða æfingabúðir með Sensei Pat McLuskey 5.dan helgina 8.-10. nóvember í Þórshamar.
Sensei Pat McLuskey býr og þjálfar í Skotlandi. Sensei Pat hefur verið tíður gestur hjá Þórshamri í gegnum tíðina og er þetta í níunda skipti sem hann kemur og heldur æfingabúðir. Hann hefur náð mjög góðum árangri í kata á alþjóðlegum mótum, hvort sem um er að ræða Evrópu- eða heimsmeistaramót.