Sæl öll

Ég sé á könnuninni núna að þó yfirgnæfandi meirihluti þáttakenda sé gegn banni á höfuðhögg í bardagaíþróttum þá eru um 11% (af þeim sen hafa kosið núna) jákvæðir gagnvart slíku banni. Mér datt í hug að við gætum notað þessa grein og svör til að setja fram málefnaleg rök með og á móti. Endilega skrifið inn undir þessa grein hvað ykkur finnst um bann við höfuðhöggum, en málefnalegt takk! Ekkert kjaftæði núna. Það er bráðnauðsynlegt að fá rökin með og á móti og það væri mjög gaman að fá stutta grein eða svar frá þeim háttvirtu þingkonum sem leggja tillöguna fram á Alþingi. (Ég er þegar búinn að skora áþær að skrifa inn). Þeir sem hafa kosið með banninu hér í könnuninni fá hérna tækifæri til að styðja mál sitt. Og munið … no namecalling, öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir :)

obsidian