Með þessarri grein vil ég kynna menn fyrir átrúnaðargoðinu mínu og fyrirmynd í bardagalistaheiminum, Meistara Todd Weeks frá Ohio í bandaríkjunum. Todd er fjölhæfur bardagalistamaður og góð fyrirmynd. Hann er líka hrikalega sterkur og getur lyft mjög þungum lóðum. Hann er einnig fjölhæfur tónlistamaður og leikur á ýmis hljóðfæri. Svo á hann dóttur sem tekur sig vel út í bikini og aðstoðar hann við þjálfun og dagleg störf. Ég mæli með því að allir kíki á heimasíðuna hjá Meistara Weeks:

www.toddweeksmovies.com

Ef að þið lærið eitthvað af myndböndunum hans getið þið svo sent inn myndband af ykkur þar sem þið sýnið allt sem þið hafið lært og fengið gráðu fyrir aðeins 100 dollara. Ég gerði það og er núna með áttunda dan í einhverju sem ég veit ekki hvað heitir…en það svínvirkar. Það eina sem þið þurfið að gera er að herma eftir Todd Weeks og þið verðið óstöðvandi eins og ég og Todd.

Takk fyrir og gangi ykkur vel að æfa.