Ég hef aldrei sent inn mynd hingað en einhverntíman er allt fyrst.Mér finnst mjög gaman að taka myndir og ég er að safna mér fyrir góðri myndavél en þessi mynd var tekin á Canon Digital Ixus 55.
Ég tók þessa mynd í desember í fyrra, hafði ekkert sérstakt í huga og tók hana bara einhvernveginn. Síðan sá ég hana í tölvunni og fannst hún frekar flott. Ég setti hana á flickr en fannst eitthvað vanta að vinna hana svo ég bað um hjálp í group sem heitir Supportive, Helpful Critique. Síðan lagaði ég hana aðeins til og fiktaði í henni og þetta kom út.