"My name is Lina Inverse" “My name is Lina Inverse!”

Búinn að fá nóg af myndum frá GuoapoDiablo svo hér er mynd af Linu Inverse, aðalpersónunni í Slayers. Þess má geta að þessa dagana er verið að sýna í Japan fjórðu Slayers sjónvarpsseríuna, Slayers Revolution, sem ætti að gefa fólki alveg hreint frábæra ástæðu til þess að kíkja á Slayers, Slayers Next og Slayers Try ef það hefur ekki séð þættina nú þegar.