Fate/stay night Hér eru góðkunningjar okkar úr Fate/stay night, Archer og Rin, að bregða á leik og hress að vanda. Þess má geta að fyrsti hlutinn af þremur af leiknum hefur verið þýddur á ensku, og má nálgast þýðinguna á http://www.mirrormoon.org/, en að sjálfsögðu þarf ekki að taka fram að leikurinn fylgir ekki með. Svo ber að sjálfsögðu að nefna að leikurinn er bannaður innan 18 ára, sem þýðir að litlu krakkarnir á hugi.is/manga (þ.e. Iceheader) er með öllu óheimilt að spila hann, nema að Vilhelm sé viðstaddur til að segja hvenær eigi að loka augunum.