Ég hef verið að pæla í því með kannanir hérna, það eru alltaf að koma einhverjar sem um hvaða sería er best, eða hvaða persóna er öflugust eða eitthvað álíka. Og það eru alltaf einhverjir sem kvarta yfir því að það vanti eitthvað sem þeir myndu vilja svara. Nú man ég eftir því þegar slith leysti það með því að setja inn svo marga möguleika að manga síðan lengdist um margar blaðsíður, en maður nennti bara ómögulega að fara yfir það og svaraði bara neðsta möguleika.

Hér er svo spurningin:
Er ekki hægt að setja inn script í kannanir þannig að hægt sé að bjóða upp á wildcard? Þ.e. möguleikann fyrir þann sem er að svara þeim að bæta inn sínum eigin valmöguleika. Ég hef stundum séð þetta í könnunum annarsstaðar á netinu.

Hvað finnst ykkur?