Doki Doki Literature Club er svokallaður Visual Novel-leikur þar sem þú fylgist með sögu og tekur ákvarðanir sem geta haft áhrif á hvernig hún þróast. Í byrjun virðist leikurinn vera frekar venjulegur japanskur stefnumótaleikur (Dating Sim) þar sem þú kynnist fjórum stelpum: Moniku, Sayori, Natsuki og Yuri.

En það sem byrjar sem saklaust anime-ævintýri um ást, vináttu og bókmenntaklúbb verður fljótt mun dekkra en maður býst við. Eftir því sem sagan heldur áfram breytist leikurinn smám saman í sálfræðilegan hryllingsleik (Psychological Horror) sem fjallar meðal annars um þunglyndi, einmanaleika, sjálfsskaða og sjálfsvíg. Leikurinn notar blekkjandi útlit sitt til að koma spilaranum sífellt meira á óvart.

Ein áhugaverðasta persónan í leiknum er Monika, sem gegnir mikilvægu hlutverki sem aðalandstæðingur sögunnar. Það sem gerir hana sérstaka er að hún kemst að því að hún er persóna í tölvuleik. Hún áttar sig á því að það er til spilari fyrir utan hennar eigin heim og að hinar stelpurnar eru í raun bara persónur sem fylgja forrituðu handriti.

Þegar Monika áttar sig á þessu fer hún að fikta í kóða og skrám leiksins og hefur áhrif á hinar persónurnar til að reyna að ná athygli spilarans. Hún vill að spilarinn taki eftir sér, eyði tíma með henni og velji hana fram yfir hinar stelpurnar. Markmiðið hennar er að komast undan takmörkunum leiksins og ná sambandi við manneskjuna sem situr hinum megin við skjáinn.

Það sem mér finnst gera Doki Doki Literature Club svona áhugaverðan er hvernig hann leikur sér með væntingar spilarans. Maður heldur fyrst að maður sé að spila venjulegan anime-stefnumótaleik en kemst svo að því að það er allt annað í gangi á bak við tjöldin. Hann er gott dæmi um hvernig tölvuleikur getur notað sögu, persónur og sjálft leikjakerfið til að skapa mjög óþægilega og eftirminnilega upplifun.

hallo hugarar ég er hugari sem kom hingar fyrst fyrir úf hvað var það 14-15 árum ég gleimdi aðgangs orðinu mínu vonanai verður tekið vel viðmér á ný