Persona 5 er japanskur hlutverkaleikur (JRPG), líkt og margir aðrir þekktir leikir á borð við Final Fantasy, Pokémon og Xenoblade Chronicles. Leikurinn notar umferðarbaserað bardagakerfi þar sem þú og andstæðingarnir skiptist á að gera árásir. Þú stjórnar fjórum meðlimum Phantom Thieves í einu og getur valið mismunandi árásir og hæfileika til að sigra óvinina. Þegar þitt lið hefur lokið sinni umferð fær andstæðingurinn tækifæri til að ráðast á þig.

Aðalpersónan, Ren Amamiya, verður alltaf að vera í liðinu en þú færð sjálfur að velja hina þrjá meðlimina. Það eru nokkrir aðrir karakterar sem þú getur valið á milli, meðal annars Ryuji, Ann, Morgana, Yusuke, Makoto, Haru og Akechi.

Persona 5 er fimmti aðalleikurinn í Persona-seríunni. Sagan snýst um aðalpersónuna Ren Amamiya, sem neyðist til að flytja frá heimaborg sinni eftir að hann reynir að hjálpa konu sem verður fyrir áreitni af ölvuðum manni. Í kjölfarið er hann kærður og fær skilorðsbundinn dóm. Hann þarf því að flytja til Tókýó, byrja í nýjum skóla og búa hjá fjölskylduvini sínum, Sojiro Sakura.

En lífið í nýja skólanum verður fljótt mun furðulegra en hann bjóst við. Á fyrsta skóladeginum kynnist hann strák að nafni Ryuji og saman enda þeir inni í dularfullum stað sem kallast höll (Palace). Hallirnar eru eins konar spegilmyndir af huga fólks og sýna hvernig einstaklingar sjá heiminn í kringum sig.

Fyrsta höllin sem Ren og Ryuji lenda í tilheyrir íþróttakennara skólans, Kamoshida. Hann lítur á sjálfan sig sem konung, skólann sem sinn eigin kastala og nemendurna sem þræla sína. Þetta er aðeins byrjunin á því sem bíður þeirra.

Upp frá þessu lifir Ren tvöföldu lífi. Á daginn er hann venjulegur nemandi sem reynir að fóta sig í nýjum skóla, eignast vini og aðlagast lífinu í Tókýó. En eftir skóla tekur hann að sér allt annað hlutverk sem leiðtogi hópsins Phantom Thieves. Hópurinn ferðast inn í þessar dularfullu hallir til að stela fjársjóðum sem tákna brenglaðar langanir fólks og reyna þannig að breyta hjörtum þeirra til hins betra.

Það er þessi blanda af venjulegu skólalífi, yfirnáttúrulegum ævintýrum, litríkum persónum og japönskum anime-stíl sem gerir Persona 5 að svo sérstökum leik.

hallo hugarar ég er hugari sem kom hingar fyrst fyrir úf hvað var það 14-15 árum ég gleimdi aðgangs orðinu mínu vonanai verður tekið vel viðmér á ný