Mig langar að fá pínu fleiri greinar hérna inn á áhugamálið.

Mér datt í hug að við gætum sett saman lista yfir þau anime, eða annað efni sem mögulegt væri að skrifa um.

Síðan gætu einhverjir áhugasamir valið efni eða fengið einhverja hugmynd af efni og skrifað grein um það.

Það sem ég nefnilega held að haldi aftur af fólki við að skrifa greinar er að þau viti ekki hvað þau eiga að skrifa um eða eru hrædd um að einhverjir drulli yfir þau.

Það ættu allir að prófa að skrifa einhverja eina grein, litla eða stóra.

Það var skrifuð ein grein 2009! , á þessu ári eru komnar tvær. Við hljótum nú að geta gert betur en þetta…
__________________________________________