Já góðan daginn. Nú hef ég skoðað nokkra þræði þar sem það er mælt með einhverju sérstöku, en ég er svo löt að ég nenni ekki að sortera út það sem ég gæti mögulega fílað. Svo ég spyr hér:

Er einhver sem veit um manga sem hefur fullorðna karaktera (ekki 11-16 ára krakka), er vel teiknað, hefur brjálað góðan söguþráð og censorar ekki (ekki notað “darn” í staðinn fyrir “fuck”). Ég er að leita að hverju sem er í rauninni, nema ekki romance. Það má vera romance innifalið, en ég nenni ekki einhverju væmnu drasli. Endilega action, horror, fantasíur, sci-fi, etc.

Svo, er einhver hér sem hefur awesome taste in manga?

Bætt við 17. febrúar 2010 - 17:43
Vúps mætti kannski bæta við:

Með vel teiknað meina ég ekki “krakka”manga. Ekki þetta: http://thehetre.vn/ichinews/090216142447-197-694.png

:D