Kannast einhver við Initial D hér á landi? Þetta er hvorki til í Nexus né á Laugarásvideo, og menn kannast ekkert við þetta þegar ég spyr.

Initial D var upphaflega manga sería eftir Shigeno Shuichi, og fjallar um ungmenni sem stunda næturkappakstur.
Það er búið að gefa út ca. 25 bækur, tvær sjónvarpsþáttaseríur (plús eitthvað extra), og bíómynd. Tv seríurnar heita Stage 1&2, og bíómyndin Stage 3.

Mig langar að komast í eitthvað af þessu dóti, og þarf að öllum líkindum að panta það af planetanime.com.

Er einhver sem kannast við þetta?