Er yfir höfuð eitthvað af Íslendingum sem gera sér ferð erlendis til að sækja anime ráðstefnur?

Ég hef farið á Otakon, Anime North og London Expo og er að fara aftur á London Expo núna í lok Október og var svona að velta þessu fyrir mér.

Útlendingarnir verður voða hissa og hrifnir þegar þeir komast að því að ég er frá Íslandi og mér finnst ég vera pínu eins og Palli, aleinn í heiminum.

Já, þetta er fokkdýrt hobbý, en ég er að þessu fyrst og fremst til að hitta vini mína sem búa þarna og svo á ég ættingja í London þannig að það kostar ekki svo mikið, nema bara flugið.

Auka: Stundar einhver hérna cosplay?