Allt í lagi, ég veit að þessi spurning kemur hingað mjög oft, en hefur einhver náð að finna eintak af Top Striker?

Þið munið líklega flest eftir Skot og mark (eða skot á mark?) sem var á Stöð 2 í gamla daga. Nú er maður búinn að komast að því að þetta hét Burn! Top Striker eða Moero! Top Striker, var teiknað af Nippon Animation 1991-2 og spannaði 49 þætti, en ég get ekki fundið þetta á torrent, VHS eða DVD nokkurs staðar!

Hefur einhver gerst svo duglegur að finna þetta, og þá hvar? Ég gæfi mikið fyrir eintak. ;)
"