Ég ætla að vera hreinskilinn, ég þoli ekki manga. Mér finnst flest manga gubbuleiðinlegt og úr hófi heimskulegt, en sögurnar eftir Katsuhiro Otomo eru bara allt allt annað.
Svo ég var að velta fyrir mér hvort einhver gæti bent mér á eitthvað svipað og Akira og Domu bækurnar? Eitthvað sem dregur sig frá hinu eðllilega manga. Þarf ekki endilega að vera einhver sci-fi horror, bara eitthvað sem ykkur finnst best í heimi.
Einu manga bækurnar sem ég hef lesið og haft gaman af eru Lone Wolf, Akira, Domu og Battle Royale (svona á mörkunum). Svo þið vitringarnir hafið einhverja hugmynd um hvað ég er að leita af.