Azumanga Daioh fylgir hópi stelpna í gegnum menntaskólaárin - allt frá fyrsta degi til útskriftar. Þeir eru í rauninni bara um daglegt líf þeirra og samskipti við kennara, og þessu er öllu lýst á gamansaman máta.
Hver þáttur er í raun fimm minni þættir sem byggðir eru á 3ja ramma gamanmyndasögum.
Azumanga Daioh er klárlega ein fyndnasta sería allra tíma. Hún ætti að hitta beint í mark hjá þeim sem fíla súrrealískan húmor.
Bætt við 29. nóvember 2006 - 10:44 Eitt í viðbót, hér er tengill á lélega en þó nothæfa umfjöllun um seríuna sem ég skrifaði fyrir nokkrum árum.
http://www.hugi.is/manga/articles.php?page=view&contentId=638339