Langar að skella einni grein um Naruto á þessa síðu.

Naruto eru anime/manga seríur um dreng að nafni Uzumaki Naruto. Hann er sérstakur á þann hátt að hann er með Kyuubi sealaðann í sér. En Kyuubi er illur demon sem réðst á þorpið Konoha. Demoninn leit út eins og refur með 9 skott (Kyuubi = nine tailed fox). Í bardaga við Kyuubi sendi Konoha margar ninjur. Flestir sem börðust við Kyuubi dóu en ein ninja þekkt sem the 4th Hokage náði að seala Kyuubi inni í naflanum á nýfæddu barni (sem sagt Naruto). En við það að seala Kyuubi í Naruto dó 4th Hokage. En til þess að segja ykkur það þá er Hokage öflugasta ninjan í þorpinu. 4th Hokage sealaði Kyuubi í Naruto og vonaði að með því myndu þorpsbúar líta á Naruto sem einskonar hetju. En ekki fór svo. Frá fæðingu hefur Naruto þurft að þola ofsókn þorpsbúa sem hata hann. Hann hefur ávalt verið einn. En einn dag breyttist það. Kennarinn hanns Naruto: Iruka-sensei vorkendi honum og varð hanns fyrsti vinur. Eftir það var lífið ekki svo erfitt hjá Naruto. Seinna meir eignaðist hann svo fleiri vini. Þar á meðal má nefna Uchiha Sasuke og Haruna Sakura. Og auðvitað hinn skemmtilega Hatake Kakashi. Naruto eru skemmtilegir þættir sem höfða til allra. Persónulega finnst mér þeir vera tær snilld. Vona að þið hafið gaman af þessari grein en nú er henni lokið.
Never trust a skinny cook!