Mér finnst hann vera algjör snillingur. Samt hef ég aðeins séð 2 myndir eftir hann. Þær eru Princess Mononoke og Spirited Away. Ég er ennþá eftir að smá fullt af myndum sem hann hefur gert. Hvaða myndir hafið þið séð með honum? Hvernig finnst ykkur þær?

Þetta er það sem mér finnst um hans myndir(sem ég hef séð):

Spirited Away - 10/10

Algjör snilld og eitt af bestu myndum sem ég hef séð! Magnað ímyndunarafl og snilldar saga. Frábærir karakterar líka, ein sérstakasta mynd sem ég hef séð. Allir ættu að sjá þessa mynd.

Princess Mononoke - 9/10

Princess Mononoke var fyrsta myndin með honum sem ég sá og hún er mjög ólík Spirited Away, líka lengsta teiknimynd sem ég veit um(134 mín). Þessi mynd er líka alveg frábær og ég mæli með henni.