“Kyo Kara Maoh!” eða “God(?) save our king!” eru einir snilldar anime þættir sem ég hef á lent á… ásamt Naruto og Fruits Basket… og svo Chrono Crusade og kannski einhverjum öðrum en allavega…

Þessir þættir byrja svo að aðalpersónan (karlkyns. svart hár. svört augu) Yuri, aðeins ósköp venjulegur skólastrák er sturtað niður í klósettið af ‘bullies’ og lendir í allt öðrum heimi (þetta týbíska!!). Þar kemst hann af því að hann er ‘Demon King’ og það sést greinilega á hárlitnum og augunum… en svartur á að vera litur þess konunglega… allavega… í þessum heimi segja drekar ‘mew’ og kettir allt annað… og hákarlar eru jurtaætur… og pöndur búa í eyðimörkinni og éta fólk… *hóst* og aftur… allavega… Hann lendir í ýmsu t.d. í byrjun gefur hann einum gaur (sem lítur út fyrir að vera stelpa… ljóshærður með græn augu…) kinnhest og segist ekki ætla að taka það til baka en þá eru þeir orðnir trúlofaðir!! @_@° Já og svo ef einhver hendir niður hníf og þú tekur hann upp þá þýðir það að þú ætlir í einvígi við þá manneskju… Og svo í þessum heimi er ekki óvenjulegt fyrir karlmenn að giftast… *hóst* sem getur leitt til að á sumum stöðum er þetta alveg ótrúlega gay!! En það er nú bara fyndið!! ^_^

Guð minn góður ég er búin að hlæja rassinn minn af (laugh my ass off) og ég vildi bara segja ykkur frá þessari seríu en hún er alveg ótrúlega skemmtileg og fyndin! Don't think about the gayness… it's just funny but no porno… *sad* -_-° No just joking ^_^° En ég mæli eindregið með þessari seríu og það ættu allir anime fans að kíggja allavega á fyrstu þættina…

Vona að einhver slái til… en serían (5 fyrstu diskarnir allavega) eru fáanlegir í Nexus en þetta á að verða 9 diska sería að mér skilst… en hún er ekki öll komin út á ensku…

Enjoy!!
Dancingdoe is over and out °-(^_^)-°