Ég skil ekki alveg söguna í kringum þetta AMV dæmi. En þetta er nokkurnvegin þannig að einhverjir plebbar útí bæ eru að setja fyndin eða furðuleg soundtrack við eitthvað scene eða blandaða klippu úr anime.

Oft er þetta bara plain furðulegt en þetta nær manni samt í mjög gott skap.

Það virkar best að fara á google.video.com og leita bara af AMV og þá fær maður upp skrilljón klippur.

En það hafa verið gefnar út svona langar myndir með samansöfn af þessum klippum og hérna er linkur á eina:
http://video.google.com/videoplay?docid=5581786274791925514&q=AMV

Veit samt ekki.. en þetta höfðar ótrúlega vel í minn húmor :P