Ég kynntist nýlega manga þegar ég sá á bókasafninu litla sæta bók sem hét love hina og skellti mér á hana, og komst að því að þetta var æðislegt!!! og ´fékk síðan að vit að þetta væri eitthvað sem kallaðist manga. Jæja ég ákvað að reyna að komast að því hvað það væri og það er víst alveg heilmikið mál. Auðvitað sökk ég strax á bólakaf í þetta en því miður hef ég bara séð þessar manga bækur á bíkasafninu - og það er nú ekkert svakalegt úrval þar. Hvar get ég nálgast þetta? Kostar þetta mikið??? Auk þess langar mig svakalega að sjá eitthvað anime eina sem ég hef rekist á var á næstu videoleigu og það voru myndirnar princess mononoke og house of spirits(held ég að hún hafi heitið??) Þær voru báðar æðislegar… en auðvitað hef ég ekki séð neitt meira af slíku :-(
Enn og aftur hvar get ég nálgast þetta?? Ég hef ekki séð þetta neinstaðar annarsstaðar kostar þetta mikið (ég er ekkert svakalega rík) og er erfitt að finna þetta??? Mér sárvantar hjálp!!!
(vissi ekki alveg hvort þetta ætti að fara á korkinn eða ekki..)

P.S í augnablikinu er ég að lesa svona bókaflokk sem kallas gto og þetta er bara helvíti skemmtilegt!! Mæli með þessu…

Takk
kv. joa