Nú langar mig að spyrja, er einhver möguleiki á að fá opening theme úr seríum hingað á hugi.is/manga?? Held að það teljist seint til stuldar að hafa opnunarlag seríu til niðurhals, virkar frekar sem svona promotional dæmi til að auglýsa seríuna, auk þess sem oft er erfitt að nálgast þessi lög öðruvísi nema maður sé reiðubúinn að standa í innflutningum frá Japan.

Opnunar theme-in eru oft alveg frábær lög. Opnunarlög sem ég man eftir í augnablikinu sem eru mjög góð að mínu mati og ég væri til í að sjá hér eru úr t.d. Onegai Teacher, Escaflowne, Full Metal Panic, Cowboy Bebop, GitS: Stand Alone Complex.

Hvað hafa stjórnendur og þið hin um þetta að segja?