Hver er admin hér? (bara til að vita hvern maður á að vera ægilega nice við og svoleiðis)


Mig langar til að vita hvort það eru einhverjir sem koma á þetta áhugamál sem teikna Manga sjálfir… fyrir utan mig og demadema sem er algjör snillingur, mæli með því að allir tékki á wickeduniverse heimasíðunni hennar!!!

Svo er ég forvitinn hvort einhver hefur “lesið” How to draw MANGA
seríuna (fæst í Nexus…duh) og hvað þeim finnst um hana.
Ég keypti þvísemnæst alla seríuna+how to draw anime&game characters (auk þess sem ég á ótrúlegt magn af öðrum ‘how to draw’ bókum) og mér finnst þessi nýja how to draw manga bókaröð algjör snilld, þó að það mættu vera fleiri skýringarmyndir í þeim og þýðandinn mætti prófa að læra ensku.

Anyway, var bara'ð pæla

kv. Estorriyol-mighty sorcere