Hérna er ein góð sería.

Kanon fjallar um Yuuichi sem er strákur er kemur aftur til bæjar eftir 7 ára fjarveru. Hann man eitthvað eftir því að hafa verið þar áður, en man lítið eftir því hvað hann lenti í og gerði þar fyrir 7 árum. Hann flytur til frænku sinnar Akiko og dóttir hennar sem er jafngömul og hann, Nayuki.
Stuttu eftir að hann kemur byrja minningar að hrannast upp en sumar koma á mismunandi vegu svo hann veit ekki alveg hvað hann á að lesa úr þeim. Hann hittir margar stelpur sem á einhvern hátt hafa hitt hann áður eða á einhvern hátt þarfnast hans. Ayu, Mai, Sayuri, Shiori, Makoto eru helstu stelpurnar sem hann hittir og hjálpar á einn eða annan hátt, ég segi ekki mikið frá þeim því ég vill ekki spoila en, Ayu er stelpa sem fyrir einhverja slysni rekst á hann úti á götu þegar hún er að hlaupa í burtu frá búðarmanni sem hún stal frá því hún var svöng. Hún er stöðugt að leita að einhverju en finnur það aldrei sama hversu mikið hún og Yuuichi leita saman. Shiori er stelpa sem hann hittir þegar hann og Ayu eru að labba og kemst hann að því að hún þarf hjálp hans líka, hún hefur meira á bakvið sig en fyrst sýnist. Mai er sérstök stelpa sem segir ekki mikið en lætur yfirleitt verkin tala, hún á sverð sem hún notar mikið til að berjast en við hvað veit enginn. Sayuri er besta vinkona Mai, hún er svolítið upper class en lætur þó ekki þannig og vill allt gera fyrir Mai. Makoto er stelpa sem birtist uppúr þurru og vill ekkert heitar en að hefna sín einhvernveginn á Yuuichi, hún veit þó ekki afhverju og það eina sem hún man er að hún var reið við hann og hvað hún heitir, allt annað er horfið. Nayuki er dóttir fræknu Yuuichi, en ég er ekki viss hvernig þau eru skyld, hún er mjög upptekin af honum en hann ekki af henni og það fer svolítið í hana.
Viðvörun þegar þú ert að horfa á þetta mundu þá að hafa klút eða tissjú nálægt því að þegar tekur að líða á seríuna þarftu mjög svo að þurrka tárin í burtu, ef þú tárast ekki og sérð ekki “what the big deal is all about” farðu þá í sálfræðirannsókn. Allir með tilfinningar finna eitthvað þegar þeir eru komnir eitthvað á leið í seríunni.
Frábær sería sem er tilvalin til að horfa á með kærustunni eða bara ein/n.
:.Twistur.: