Snilldarsaga sem gerist í svona western umhverfi.

Vash the Stampede er gaur sem gengur um í rauðum frakka, heldur á BFG og er samt meinlaus eins og mús. Hann gæti ekki hugsað sér að taka líf þó það myndi kosta hans eigið. Þetta með BFG er bara því hann er með risastóra byssu.

Mangað er heldur öðruvísi en serían því serían byrjar í rauninni mikið fyrr heldur en mangað. Serían byrjar þar sem Vash er að lenda í hinum og þessum ævintýrum og tvær tryggingaeftirlits stelpur, Meril Stryfe og Milly Tompson (ef ég man rétt) eru að leita að hinum goðsagnakennda VASH THE STAMPEDE, því að hann er ábyrgur fyrir eyðileggingu á borginni July. Þær komast að því svo seinna meir að hinn meinlausi ljóshærði gaur sem gerir allt til að komast hjá því að meiða fólk er í raun Vash the Stampede. Þær elta hann um allt og taka niður skýrslur um skaða sem hann veldur eða er ollið vegna hans því hann hefur 60.000.000.000 double dollar bounty á hausnum og það vilja þann pening margir.
Vash er að elta uppi gamlann “félaga” eða hugsanlegan bróðir sem olli honum mikilli sorg og þarf hann að fara í gegnum helvíti fyrst. Hann hittir marga á leiðinni og þar á meðal Wolfwood sem er farandsprestur, þegar hann hittir hann verður seríann allt í einu mun mun áhugaverðari. Mæli eindregið með því að ALLIR sjái eða lesi þessa seríu, ef þið eigið hana ekki, kaupið hana, ef það er ekki hægt dl-ið henni, ef það er ekki hægt gerið þá allt til að sjá hana annarsstaðar því þetta er ein sem allir verða að sjá.

Checkið á henni og gefið ykkar álit

:.Twistur.:
:.Twistur.: