The Martian Successor - Nadesico The Movie Í stuttu máli sagt þá er þessi gripur víst búinn að vera ófáanlegur í evrópu og bandaríkjunum. Og í hreinskilni sagt þá rakst ég á þessa mynd fyrir algera tilviljun á netinu fyrir nokkrum mánuðum síðan

Myndin á að gerast nokkrum árum eftir að þáttunum líkur, eftir dauða Yurika (skipstjóri) og Akita (kokkur/pilot).
Á því tímabili sem var á milli þáttanna og myndarinnar, þá börðust yurika og akita fyrir því að friður ríkti á milli “the jovian lizards” og “earth federation”. Og undir lokin þá virðist þeim hafa tekist að sameina þessa tvo erkióvini undir einn hatt með því að stela svarta kassanum sem stjórnaði öllum “dimensional hoppunum” þannig að óvinirnir tveir gátu ekki lengur barist án þess að það kostaði þá vikur eða jafnvel mánuði í það að fljúga á milli staða.
Heimurinn byrjaði að byggja sig upp á ný og áhöfn nadisico hættir og hverfur til sinna gömlu starfa, allir nema Ruri (ofurtölvunördið). Ruri hefur elst um nokkur ár frá því hún var í þáttunum og er orðin skipstjóri á nýjum battlecruiser.
Í stuttu máli sagt þá fjallar myndin aðallega um það að hún byrjar að rannsaka dularfull hvörf/dauðsföll á meðal “class A jumpera”, eða fólks sem hefur þann hæfileika að geta stjórnað dimensional hoppunum.
Sú rannsókn leiðir í ljós nýjar uppgvötvanir varðandi dauða yurika og akita sem veldur því að yfirstjórn flotans sér sig tilneydda til að kalla saman gömlu áhöfn nadesico og senda þau öllsömul á vit nýrra ævintýra…