Lucas Martin Castróman
———————————————

Fæðingardagur:10/2/1980
Fæðingarstaður:Lujan
Þjóðerni:Argentínskur
Hæð:180 cm
Þyngd:76
Staða:Miðjumaður

Þessi ungi kantmaður byrjar í láni hjá Udinese, en hann er samningsbundinn Vélez í Argentínsku deildinni. Vélez veitir örugglega ekki af smá pening enda ekki ríkasta lið í heimi svo hann kemur örugglega ekki til með að kosta mjög háar fjárhæðir. Þessi snöggi kantmaður spilar á hægri kantinum(AM R)og er góður fyrir flest lið, leggur upp gommu af mörkum og setur hann með reglulegu millibili. Ég hef ekki mikla reynslu af honum í nýja leiknum en notaði hann þónokkuð í 02-03 með góðum árangri. En eins og hann hefur verð að spila hjá öðrum liðum í nýja leiknum þá lýst mér mjög vel á hann. Hann er metinn á ca 5.5 m og ætti að fást undir 10 millunum en þeim 10 millum yrði allavega vel varið. Hvet alla til að kaupa hann og verða á undan (hinum) stórliðunum að ná honum.

Kv

Massimo