Eins og þið sjáið hef ég verið nokkuð duglegur að senda inn leikmannaumfjallanir, ég verð bara að segja að mér finnist það mjög gaman svo tekur þetta heldur enga stund þannig að þær koma eiginlega á hverjum degi, svo það væri ekki vitlaust að kalla þetta leikmaður dagsins. Vil minna á að senda mér skilaboð ef þið hafir hugmyndir að leikmanni dagsins.

Rafael van der Vaart

Fullt nafn:Rafael Ferdinand van der Vaart
Fæðingardagur:11/02/83
Fæðingarstaður:Heemskerk
Þjóðerni:Hollenskur
Staða:Miðjumaður
Heimasíða:www.rafaelvdvaart.nl
Systkyni:Einn bróðir, Fernando
Hæð:1.74
Þyngd:70 kg
Uppáhalds íþróttamaður:Tennisleikarinn Pete Sampras
Uppáhalds leikvangur:Nou Camp, Barcelona
Kærasta:Sylvie Meis, hollensk sjónvarpskona
Áhugamál:Fótbolti, sjónvarp og tónlist
Persónuleg verðlaun:
1999:
* Talent of the year (Ajax)
2000:
* Amsterdam Talent of the year
2002:
* Best player in the Amsterdam Tournament
Verðlaun með Ajax:
2001-2002:
* League Champion
* Amstel Cup
* Amsterdam Tournament
2002-2003:
* Amsterdam Tournament
* Johan Cruijff Schaal
Fróðlegt:Mamma hans er spænsk!

Van der Vaart byrjaði að spila fótbolta 4. ára gamall hjá “Kennemers in Beverwijk”. Þegar hann var 10 ára var honum boðið á svokallaðan “Talent Day” og sýndi góða takta þar og var fenginn í unglingalið Ajax. Hann spilaði sinn fyrsta leik gegn FC Den Bosch og það var bara byrjunin…

Núna er hann einn eftirsóttasti sem og efnilegasti leikmaður Evrópu ef ekki heims. Hann er í Ajax í byrjun leiks og er ekki með neina klásúlu í samningnum sínum um að hann megi fara ef ákveðið verð er boðið í hann. Því er erfitt að fá hann því Ajax vilja helst ekki sleppa honum en mér hefur einu sinni tekist að fá hann, til Inter þá og stóð hann sig mjög vel bara. Hann vill ekki fara til hvaða lið sem er og mér tókst ekki að fá hann til Chelsea þótt ég byði honumm 100.000 pund í vikulaun. Hann getur spilað á vinstri kantinum og á miðjunni svo er einnig hægt að lauma honum fram ef þig bráðvantar framherja, hann er “AM LC” nánar tiltekið.

Þar sem ég hef ekki mikla reynslu af honum get ég ekki sagt honum hvernig hann hefur verið að spila hjá mér, en eitt veit ég fyrir víst, að þetta er frábær leikmaður sem allir ættu að reyna að kaupa.

Fyrir áhugasama, þá er hér mynd af kærustunni hans;) http://www.tv-vrouwen.net/presentatrices/kindermeisjes/foto/fotocf01.jpg

kv.

Massimo