Ég er að leita að nokkrum aðilum til að testa íslensku deildina fyrir FM2008. Ég leita að fólki sem hefur bæði vit og áhuga á íslenska boltanum og hefur áhuga á að bæta deildina í heild sinni. Athugið að þeir sem taka þátt í þessu verkefni munu aðeins fá íslensku deildina í hendurnar svo ég bið þá sem hefðu hugsað sér að leika sér í ensku deildinni að sleppa því að sækja um.

Óhjákvæmilega koma upp ýmsar villur og gallar í leiknum á byrjunarstigi og því óska ég eftir aðstoð ykkar. Ef þú hefur áhuga endilega sendu mér skilaboð með upplýsingum um þig, hvaða lið þú styður á Íslandi og hvers vegna þú átt að hljóta hnossið, t.d væri frábært ef viðkomandi er viðloðin eitthvað lið…

Kveðja…

Bætt við 16. ágúst 2007 - 21:43
Takk fyrir áhugann allir saman en því miður er ekki pláss fyrir fleiri að þessu sinni…